porthos í kínalandi

Rants 'n rambles from Shanghai

Pælingar

Comments: 6     Stars : 0

Ég er búin að vera hérna í hálft ár. Stór áfangi í raun þó þetta hafi liðið mjög hratt. Ég er búin að læra mikið hérna, bæði í tungumálinu og svo kannski því mest mikilvæga, í mannlegum samskiptum. Það að fylgjast með þessari súpu sem Shanghai er, fólk hvaðan af býr hérna á meðal kínverjana.

Eitt sem mér finnst standa útúr er hvað kínverjarnir eru miklu vingjarnlegri en fólk í stórborgum vestursins. Maður fer og kaupir eitthvað í "hole in the wall" (svona litlum fjölskyldu búðum / scooter verkstæðum / eða whatever, svolítið í anda Fröken Reykjavík niðri á torgi) og það eru allir svo vingjarnlegir. Þetta auðvitað á ekki við um alla, en samt gaman að þetta skuli vera svona í þessu mæli.

Rakst á mynd á netinu í morgun. Góð mynd af stelpu sem heldur á regnhlíf til að hlífa einum af vörðunum á Tiananmen Square. Þessir krakkar eru of ung til að muna almennilega eftir því sem gerðist '89, hvað þá að hafa tekið þátt í því. Ég held að þetta sé lýsandi dæmi um þessa breytingu sem er í gangi hérna í Kína. Auðvitað býr meirihluti kína við mjög mikla fátækt, sérstaklega á landsbyggðini, en þetta er allt að breytast.

girlAndSoldier.jpg
: Stelpa og Hermaður í slabbi og rigningu :

Jæja, ekkert að frétta.. same shit different day og allt það. Hafið það gott.

zai jian,
Atli




Back to entries      Comment on this entry



ingunn (Homepage) on 27. novembre 2005 at 13:37
hæ hæ. hurru, ég þarf að tala við þig.. um áramótin sko.

   

ingunn (Homepage) on 27. novembre 2005 at 13:40
hæ hæ. hurru, ég þarf að tala við þig.. um áramótin sko.

   

ingunn (Homepage) on 28. novembre 2005 at 20:59
hæ. heyrðu, þá er komið eitthvað plan; fljúgum frá köben á 2. í jólum.. og þá til beijing.. fljúgum aftur heim 9.jan.. :)

   

ingunn (Homepage) on 6. décembre 2005 at 12:52
heyrdu, hvernig væri nú að koma með nýjar fréttir af lífinu í shanghaí...hmmm..
bara svona pæling..

   

Siggadís (Homepage) on 3. janvier 2006 at 19:30
Hann er bara greinilega ennþá með þessar pælinar... ohh.. spælingar :-þ

   

Siggadís (Homepage) on 3. janvier 2006 at 19:30
Hann er bara greinilega ennþá með þessar pælinar... ohh.. spælingar :-þ

   

Comment on this entry

Registered users may login here

Name:

E-Mail:

Homepage:



Security code (as shown above):

Enter comment:

   

Back to entries