porthos í kínalandi
Rants 'n rambles from Shanghai
All hallows eve
Halloween gatherings um helgina. Var svakalega gaman. Við fórum í partí
til Chris sem vinnur með mér, í complexinu á Fuxing Lu þar sem slatti
af Ubi fólki býr. Var fínt, grey Ayi hans daginn eftir útaf öllu
draslinu. Það voru svona 60 manns í partíinu, bara okkar hópur var um
12 manns sem eru ekki partur af Ubi.
Á laugardaginn fórum við David og Derek að skoða íbúð sem Derek var
boðið. Hugmyndin hjá honum var að við myndum splitta leiguni, og búa
þarna saman. Þetta er eiginlega ekki íbúð... þetta er höll.. ef
eitthvað er. Á þremur hæðum, um 350 fermetrar, 5 baðherbergi, 4
svefnherbergi, 2 stofur, flott eldhús, 60 fermetra svalir á þriðju hæð,
10 fermetra svalir á fyrstu hæð. Vá segi ég nú bara.. ég hef aldrei séð
annað eins. Og það best er að þetta myndi kötta leiguna niður í það sem
ubisoft covera. Sjáum til, við tökum ákvörðun í dag. Ég held að ég
nenni þessu ekki, dunno.
Hékk með vinkonu minni Annabelle um helgina, grey stelpuskjátan var að
hætta með kærastanum, þannig við vorum að stappa í henni stálið og allt
það. Svakalega interesting pía. Hún er native Shanghainese, en talar
reiprennandi ensku (með canadískum hreim), er svakalega sæt og
allt það, en það besta er. Hún er ex-military. Kann kung fu og læti.
Haha.. geggjað.
Jæja.. lítið meira að frétta. Er með voða mikið kvef, fór í subway á
laugardaginn.. hlýt að hafa fengið þetta þar. Ætla fara heim eftir
hádegi, kaupa kakó fyrst, og koma mér velfyrir.
zai jian,
Wanghai
Lítið að frétta og BATTLEFIELD 2: MODERN COMBAT
Það er nú svosum ekki mikið að frétta héðan frá Shanghai. Nema kannski
það að Ayi-in mín skildi eftir opin glugga í gestaherberginu (big nono
þegar maður býr á fyrstu og annari hæð og glugginn ekki með net) og
auðvitað var ég "violated" af moskítóflugum. 12 bit. :(
Verst er þetta á ilini... svo eru tvö bit á eyranu. Bu hao.
En jæja, nóg um flugur.
Heyrðu.. suss.. er að gleyma. Battlefield 2: Modern Combat kom út í
gær. Woohoo.. voða gaman. OXM og OPM gáfu leiknum 9/10, sem er mjöööög
gott. Online reviews eru frá 8-9, með 8.5 average. Vonandi fer það
aðeins upp á næstu dögum. En alger skita mar, Microsoft tóku niður Xbox
Live netþjónana á sama degi og BF2:MC kom út, sucks ass í raun. Fólk er
ekki að ná að tengjast inná serverana, en svo er good 'ol PS2 rock
solid. Gaman að þessu.
Hérna er linkur á frábæran trailer.
http://xboxmovies.teamxbox.com/xbox/2632/Battlefield-2-Modern-Combat-Launch-Trailer/
Endilega tékkið á leiknum og skrifið comment um hvernig ykkur finnst um
hann. Það er nú ekki á hverjum degi sem maður gefur út leik sko hmmm. :D
Hérna eru nokkrar myndir af leiknum.




KK klikkar ekki (hvað eru mörg k í því?)
Jæja, fórum og hittum KK og pjakkana í Shanghai Concert Hall. Þetta var
svakalega fínt. Þetta hús er geðveikt, eldgamalt, byggt á
uppgangsárunum (20's), en algert völundarhús.
En já, þeir voru svaka solid. Flott tónlist, og náðu að byggja upp
svakalega fína stemmningu (eru tvö m í stemm?). Eyþór hljómborðsleikari
söng kínverskt lag, og KK sagði áhorfendum að syngja með. Tók smá tíma,
eitt vers eða svo, fyrir liðið að koma sér í gang en vá.. þeir náðu að
láta kínverskan almúgan taka undir og interacta með bandinu. Þeir náðu
svoleiðis að ná salnum með sér að fólk stóð upp og klappaði þá upp
aftur... sem gerist _aldrei_ í kína apperantly.
Steini undrabarn var að spila þarna með þeim á gítarinn sinn. Gaman að hitta á hann, hef ekki hitt hann í mörg ár.
Já svo eru miklu fleiri Íslendingar hérna í shanghai en ég hélt. Ég var
með það á hreinu að við værum bara 4-5 en kemur í ljós, að við erum
8-9. Noh.. doubled in numbers. En já, þetta er eins og það væru 50 þús
kínverjar á íslandi sem engin vissi af, relatively.
Jæja.. ætla halda áfram að vinna. Mætti hérna klukkan 06:45 á fund. Kannski maður fari snemma heim humm :D.
Set myndir inn af KK og félögum í Shanghai Concert Hall seinna.
zai jian
Wang Hai (王海)
p.s. hver sér kínverska stafi? rétt upp hönd! (post comment:: o/)
Allt gott að frétta héðan frá Shanghai. Victoría, vinkona hans Davids
fór aftur heim til Vermont í morgun. En hún kemur aftur í Janúar, og í
það skiptið til að búa hérna. Voða gaman fyrir þau tvö.
Fórum út að borða á People´s Restaurant No 6. Alltaf jafn góður matur
þar, Taipei / Tokyo fusion matur. Eftir það var förinni heitið á VIP
Room þar sem vinkonur hans James Jen (einn af pródúcentunum hérna hjá
Ubi) frá Hong Kong voru með bás og báðu okkur um að hitta þau. Við
fórum, ég Michael, Dan og Si Jia og hittum liðið. Var fínt, soldið
troðið. Eftir VIP Room fórum við á Mint þar sem DJNass vinkona okkar
var að spila. Greyið Si Jia hafði fengið sér heila tvo drykki og var
orðin alveg rambling. Skrýtið með þessa kínverja, þeir þola ekkert
hehe. En já, Si Jia vildi tala við Nass en datt inní DJ básin. Frekar
halló, en hún má það alveg.. hún er svo sæt haha.
En já, KK er að spila hérna á morgun í Concert húsinu. Við vorum búnir
að plana að kíkja á hann og svoleiðis.. en nei hvað haldiði að hafi
gerst. Ég fór í bankan í hádeginu í dag, og inn labbar KK. Haldiði að
það sé nú hmm.. lítill heimur. En já, við erum að fara með þeim
kumpánjónum á JZ Club að hitta Coco í kvöld. Best að koma þeim jazz
mönnum í samband. http://www.culture.sh.cn/product.asp?id=1669 Hérna er ein umfjöllunin um KK.
Jæja.. ætla halda áfram að vinna.
Zai Jian,
Atli (王海)
Party at the Portman Ritz-Carlton
Vikan er búin að vera fín. Hékk með David og vinkonu hans frá
Bandaríkjunum, Victoriu. Jæja, þar sem bankarnir eru búnir að vera
lokaðir, og allir (nema ég) gleymdu að skipta usd í rmb, þá voru
flestir eiginlega peningalausir. Jæja, á miðvikudaginn fórum við að
skipta á Portman hótelinu, en hótel bankinn var bara opin fyrir
Hótelgesti. Þannig David sló til, pantaði Svítu á þrítugustu og áttundu
hæð, og dró lið í partí. Þetta var svakalega gaman. Vorum með
kortalykla að öllu svæðinu, allt "frítt" fyrir fólk í Svítunum. Það
komu um 40 manns, DJ vinir okkar komu með græjur. Alvöru partí as it
were.
Jæja, þetta endaði um hádegi næsta dag. Hótel liðið var rosalega fínt
með þetta allt saman. Standandi partí og læti og eina sem þau sögðu var
hvort okkur vantaði eitthvað. "more ice" var oft kallað hehe. En jæja,
enuff ramble..
zai jian,
王海是乖乖 (wang hai shi guai guai)
My poor phone
Fyrsti síminn minn í kína er officially dauður. Grey Ayi kom hérna og þvoði hann óvart. Kellugreyið var í rusli. Breytir litlu, skíta sími, það ódýrasta í kína. Heilar 2000 íslenskar krónur. Jæja, ætla fara og kaupa annan síma.
)