porthos í kínalandi
Rants 'n rambles from Shanghai
Jæja, þarf að fara rífa þetta blogg áfram...
Jæja
Í raun ekki mikið að frétta. Lífið gengur sinn vanagang hérna í
Shanghai. Gengur mjög vel í vinnuni og kínversku náminu. Ætli mesta
breytingin síðan seinasta blogg sé ekki veðrið. Það er orðið miklu
mildara, hætt að vera 40 stig á hverjum degi og svoleiðis. Það er verið
að laga götuna mína eftir að það fór allt í rúst í fellybylnum. Gengur
frekar hægt allt það, en gengur samt.

Gatan mín eins og hún leit út í morgun.
Anders vinur minn sem vann með mér hjá Digital Illusions kíktu hérna í
heimsókn í seinustu viku, hann var á leið til Vietnam. Það var
svakalega gaman. Hittum liðið úr vinnuni um helgina, fórum á Babyface á
laugardeginum. Damn hvað það var gaman. Pakkað af fólki, örugglega yfir
2000 manns, en einhvern vegin virkar það hérna. Við stöndum náttúrulega
"svolítið" útúr, og örugglega auðveldara fyrir okkur að labba um
staðina en kínverjana. Set nokkrar myndir af því kveldi hér fyrir
neðan. En já, fríið. Það er nasjónal holidei í næstu viku. Frí í
vinnuni og læti. Flestir sem ég þekki eru að fara til Hainan eða meira
að segja út fyrir landsteinana. Ég veit ekki alveg hvað maður á að
gera. Langar svolítið að fara til Hong Kong. Við sjáum til.
Heyrðu já. Svaka kúl, leikurinn sem ég gerði þegar ég var hjá Digital
Illusions var að fá fyrsta "review"-ið. Official Xbox Magazine gaf
leiknum 90%. Það er SVAKALEGA kúl. Minn er stoltur. Tíhí.
Ætla ekki að hafa þetta lengra að þessu, hérna eru fáeinar myndir frá laugardeginum.

Michael "laoban of OZ" á Yongfoo Elite.

Dan í góðum gír.

Natasha, kellan hans Michael. Hún er Ástrali líka. Fyndið, mér finnst hún svo lík Ingunni.