porthos í kínalandi

Rants 'n rambles from Shanghai

Entries "July 2005":

Sunday, 31. juillet 2005

Sko, ætla aðeins að rambla um markaði shanghai borgar. Nú, flestir þeirra eru alveg ágætir. Antík markaðurinn eða þá skilkimarkaðurinn. Það er eins og við er að búast á mörkuðum þróunarborga, mikið um prútt og svínarí en það er að stóru leiti sjarmi slíkra markaða.

En þá komum við að Xiang Yang market. The Fake Market eins og hann er oft kallaður. Þar geta vestrænir sem innfædirr keypt sér allt á milli himins og jarðar fyrir næstan ekkert. Nema það að vestrænir borga circa 10 sinnum meira en innfæddu... nema þá þeir vestrænu séu búnir að sjá við brögðum sölumanna eins og yours truly. :D

"Do you want to buy DVD, do you want to buy watch..:" er eitthvað sem glimur í eyrum innan markaðshliðanna. Sölumenn ráðast á mann í hópum þegar maður kemur inná þeirra svæði. En það hefur lagast með mig að einhverju leiti.. núna er maður hættur að stara uppí loftið með gapandi munn að undrast á borgini og hvernig í andskotanum maður endaði uppi hérna.

Núna ferðast maður um markaðsvæðin með einbeitingu... maður veit alveg hvað maður ætlar að kaupa.. allavega reynir maður að líta þannig út. Ætli þetta sé breytingin úr túrista yfir í local. Gæti verið.

Ég fékk hugljómum nú um daginn þegar við vorum á markaðinum að skoða, prútta og gera okkar besta að láta ekki svína of mikið á okkur. Þegar hópur sölumanna vopnaðir Rolex (bólex?) úrum, nýjustu DVD myndum, heitum frá kvikmyndasölum heimsins, (og öllu því sem ekki er við hæfi að flagga svona fyrst í samningsferlinu) koma að mér og byrja að bjóða mér díla aldarinnar. "Do you want to buy..." og svo framvegis. Ég snéri mér að þeim strax og reyndi mitt besta að selja þeim DVD myndir, Rólex úr og hvað annað sem mér datt í hug. Þeim varð heldur betur brugðið og kom svolítið fát á þá og þeir skakklöppuðust í burtu. Já hananú, þetta er málið. Ég ætla að fara ganga vopnaður um götur borgarinnar; vopnaður nýjustu og bestu dvd myndunum og "alvöru" rólex úrum.Fear the Bing Dao Salesman....

jæja.. nóg í bili

»11:43 AM    »1 comments (0 )     »Send entry    

Posted by: porthos    in: My home page
Túristinn

Lang flestir sem ég hef talað við um shanghai segja það sama um "fílingin" að vera hérna. Það er svakaleg uppbygging útum allt Kína, og shanghai þar í farabroddi. Fyrst þegar ég kom hingað þá fann ég lítin veitingastað, svaka fínan og góðan mat. Tveimur dögum seinna var allt hverfið sem hann var í farið. Sár á landslagi Shanghai borgar vil ég meina að það sé. Verið að rífa upp rosa menningararf (er það rétt að segja, "menningararf"??).

En já, burt séð frá því þá er það mest interesting hérna íbúar borgarinnar. Það er ótrúlegt að fylgjast með lífi fólksins og hvernig dýnamíkin er á milli þeirra. Ja og milli okkar útlendingana og kínverjana. Flestir virðast vera ánægðir, kínverjarnir eru glaðvært fólk og frekar nægjusamt að því virðist, þó að sumir búi við frekar shady aðstæður. En jæja, mér finnst vera rosalegur sjarmi yfir hverfunum hérna í "French Concession". Það er ótrúleg upplifun að ganga um göturnar og fylgjast með fólkinu. Samt leiðinlegt að sjá gamla bragin hverfa hægt og rólega. Ó en eitt.. maður verður samt að vara við einu; Fólkið starir rosalega mikið á vestræna. hehe

Einhverjir Shanghainese á gangstéttini að borða

»6:22 AM    »Write comment     »Send entry    

Posted by: porthos    in: My home page
Saturday, 30. juillet 2005

The Shanghai Experiement, part 1

ni hao my pretties... hope things are good. Decided to write sum of my blog in English as well for my Icelandic Challenged friends. Well.. all is good here in Shanghai. Work is good, out-of-work activities are plenty and the shanghai nighlife is as expected.. completely bonkers.. but fun. :D

I'm gonna check out this chinese punk band I recently got wind and weather of. Hang on the Box. (www.hangonthebox.com - Pic below). My friend Begga Bejing lives in... well.... Bejing... as it were, with her mum and lil sis. She's gonna hook me up with a place to stay come concert time.

Well.. best get going downtown... probably something interesting happening in Shanghai tonight.

/atli

Current mood: Happy

»1:16 PM    »Write comment     »Send entry    

Posted by: porthos    in: My home page
Ævintýri í Shanghai

Já, þetta eru búnar að vera skrýtnir þrír mánuðir skal ég nú segja. Ætla svosum ekkert að fara í nein díteil á því en jú þetta er búið að vera rosa gaman. Bæði vinnan, sem og félagslífið og næturlífið auðvitað (hen hao). Vinnan er frábær. Er að vinna að flottu prójekti með svakalega talented liði. Flottir leikir sem þetta lið hefur undir beltinu. En jæja, svo er öflugt félagslíf á meðal okkar expats. Allt frá Póker grúppuni til posh partí frakkana. (þeir eru rosalegir, frakkarnir okkar... en gaman að þeim)

Jæja, er búin að vera með heimsókn frá íslandi. Pjakkarnir mínir í CCP voru hérna úti að bardúsa. Svaka gaman og skrýtið að tala íslensku svona mikið eftir mikla fjarveru frá móðurmálinu. En þetta kom fljótt eftir 2 daga af fömbli og þvíumlíku með tungumálið. Núna er maður sem áður með hana Íslenskuna hmm.

Ætla kíkja til Bejing á tónleika með nýju uppáhalds hljómsveitinni minni, Hang on the Box (www.hangonthebox.com). Geggjaðar pönk píur frá Bejing. Rosa gaman að tónlistini þeirra.

en jæja, ætla kíkja niður í bæ og athuga hvað er að gerast... kannski maður kíki aftur niður til Sódómu (hverfi hérna með crazy börum og geðveikum klúbbum)

zai jian

/atari

Hang on the Box píurnar...

Current mood: Happy

»1:05 PM    »Write comment     »Send entry    

Posted by: porthos    in: My home page
Tuesday, 26. juillet 2005

Byrjun bloggsins...

Ni hao

Ætla byrja að blogga núna fyrir alvöru. Ætla reyna að pósta inn að minnsta kosti á hverjum degi, þó nú að það sé bara blaður um allt og ekkert.

Það er búið að vera rosalega gaman hérna í Shanghai. Rosaleg viðbriðgði auðvitað, allt öðruvísi kúltúr og umhverfi heldur en maður er vanur. En þetta er fínt. Maður er búin að vera á ferð og flugi undanfarin ár... maður ætti að vera farin að ná þessu. (vona ég)

Jæja.. hvað er að frétta annars hmm. Er loksins fluttur út úr hótel íbúðinni á Zhenning lu. Skítapleis verð ég nú bara að segja. Nýja íbúðin er geðveik. Mér líður svakalega fínt þarna. Á tveimur hæðum, uppgerð í gömlum stíl og beint í miðjuni á franska hverfinu.

Marí vinkona mín sló til og kom í heimsókn nú um daginn. Dóttir hennar varð efir í Noregi reyndar. Fínt fyrir Marí að fá smá frí frá streði hversdagsleikans. Svo komu fleiri íslendingar í heimsókn. Búin að vera nokkurskonar þjóðhátið í raun.. Invasion of the Bing Dao Ren's. :D

En jæja.. Marí er farin aftur heim noregs, og farin til íslands í stórafmæli. Hinir pjakkarnir fara að fara fljótlega. Verður skrýtið að vera einn aftur. Gestagangur í margar vikur, og svo púff... ekkert. Touché...

Kem með ýtarlegra report um ævintýri kínafaranna seinna.

/atli

»4:59 AM    »Write comment     »Send entry    

Posted by: porthos    in: My home page